Úthlutunarreglur

fyrir Útflutningssjóð íslenskrar tónlistar

 
 

Markmið og tilgangur

Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar starfar skv. reglum samþykktum af mennta- og menningarmálaráðherra þann 5. febrúar 2013. Hlutverk útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni til stærri áheyrendahóps, á stærri markaði og auka möguleika þess á velgengni utan Íslands. Sjóðurinn veitir  styrki til verkefna er lúta að markaðssókn erlendis auk þess sem veittir eru ferðastyrkir. 

Með sjóðnum verður til aukin fjárhagsaðstoð til tónlistarfólks á tónleikaferðalögum, aukin aðstoð til tónlistarfólks við þróun verkefna, aukin tækifæri til að komast á erlendar tónlistarhátíðir og auknir möguleikar skapast á tengslamyndun. 

Mikilvægt er að auðvelda íslensku tónlistarfólki að koma tónlist sinni á framfæri sem víðast. Sú reynsla, þekking og sambönd sem skapast hafa innan ÚTÓN verða nýtt til að aðstoða tónlistarfólk í viðleitni sinni til að ná inn á stærri markaði. Útflutningssjóður mun, með aðstoð fagaðila, gera tónlistarfólki betur kleift að þróa og fullvinna verkefni sín, aðstoða það við tónleikaferðalög og markaðssetningu.

Framkvæmd

Stærri styrkir auglýstir til umsóknar, fjórum sinnum á ári.

Úthlutanir til stærri verkefna verða fjórum sinnum á ári en mánaðarlega til smærri verkefna og vegna ferðastyrkja. Miðað er við að umsækjendur vinni með fagaðilum, hafi skýrar áætlanir og markmið. Þeir sem hljóta stærri styrki þurfa að leggja fram markaðsáætlanir og sýna fram á hvernig stuðningurinn getur skapað tækifæri til tekjuaukningar og sjálfbærni. Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutanir styrkja en ef þurfa þykir munu ráðgjafar taka til umfjöllunar umsóknir sem berast sjóðnum og gefa álit sitt áður en stjórn tekur endanlega ákvörðun um úthlutun.

Gert er ráð fyrir því að umsækjendur leggi sjálfir fram mótframlag í viðkomandi verkefni gegn þeim styrk sem samþykktur verður. Verkefnin geta fengið ráðgjöf hjá ÚTÓN í sambandi við skipulag, áætlanir og tengslamyndun.

Skilyrði fyrir greiðslu er að greinargerð sé skilað til ÚTÓN þar sem afrakstri verkefnisins er skilmerkilega lýst. Því stærri sem styrkurinn er, því ítarlegri kröfur eru gerðar til slíkrar greinargerðar.

Af hálfu sjóðsins verða gerðar skýrslur um stærri verkefni og fylgst með framvindu þeirra í því augnamiði að gera árangursmat í náinni framtíð.

 

Umsóknarferli

Sótt er um á umsóknareyðublaði á vef uton.is fyrir miðnætti síðasta dag mánaðar. Umsóknir og fylgigögn sendist á utflutningssjodur@icelandmusic.is.

 

Úthlutun styrkja

  • Ferðastyrkir: umsóknarfrestur einu sinni í mánuði, viðmiðun 50 þúsund krónur á mann í ferðastyrk og hámark 400 þúsund krónur á hvert verkefni. Umsóknir verða að berast fyrir miðnætti á síðasta degi hvers mánaðar.

    Markaðsstyrkir: úthlutun fer fram fjórum sinnum á ári – veittir eru styrkir að upphæð 2 milljónir í hverri úthlutun, miðað er við að þeir séu að upphæð 500.000 kr eða 1.000.000 kr og tiltekið í umsókn um hversu háan styrk sótt er um. Umsóknarfrestir eru á miðnætti 31. janúar, 30. apríl, 31. júlí, og 31. október. 

    Tilkynnt er um afgreiðslu umsókna í tölvupósti.

Frekari upplýsingar

Ferðastyrkir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á ferðakostnaði vegna tónleikahalds. Tónleikarnir verða að vera bókaðir áður en sótt er um og áskilinn er réttur til að kalla eftir staðfestingu þess efnis. Umsækjendur bera ábyrgð á að upplýsingar í umsókn séu réttar, stjórn sjóðsins getur kallað eftir staðfestingu á upplýsingum frá umsækjendum. Ef í ljós kemur að upplýsingar hafi verið misvísandi eða rangar getur það haft þau áhrif að styrkur sé afturkallaður auk þess sem það hafi áhrif á síðari umsóknir. 

Markaðsstyrkir eru veittir fyrir kynningarherferðir, til dæmis í tengslum við útgáfur og tónleikaferðalög. Einnig til að auka vitund um vörumerkið og þróun á heildarhugmynd verkefnisins. Markaðsstyrkir geta falið í sér framleiðslu á kynningarefni en þá skal fylgja greinargóð lýsing á hvernig efninu skuli miðlað og greinargóð fjárhagsáætlun sem inniheldur hvorutveggja framleiðslu- og kynningarkostnað.

Ekki eru veittir markaðsstyrkir til þess að greiða ferðakostnað vegna tónleikahalds. 

Eitt verkefni getur einungis fengið úthlutað að hámarki þrisvar sinnum á ári.

 

Samþykkt 16. apríl 2013

Uppfært 6. febrúar 2019