Fáðu lögin þín inn á lagalista Iceland Music

 

lagalistar iceland music á spotify og apple music

Tilgangur Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) er að skapa sóknarfæri handa rétthöfum íslenskrar tónlistar innanlands sem utan. Markmið skrifstofunnar er að auka viðskiptatækifæri fyrir íslenskt tónlistarfólk og bransanum í kringum þau. 

Vörumerkið Iceland Music er enska heiti ÚTÓN og er notað til að koma íslenskri tónlist á framfæri á erlendum mörkuðum og nýtir sér í þeim tilgangi ýmsa miðla á borð við samfélagsmiðla, vefsíður, fréttabréf og að sjálfsögðu, lagalista á Spotify. Iceland Music á Spotify er nú með yfir 20 playlista sem spannar helstu tegundir tónlistar sem gefin er út hér á landi og telja fylgjendur þeirra nú samanlagt yfir 30,000 manns.  

Meðal lagalista Iceland Music eru Icelandic Indie (18 þúsund fylgjendur), Icelandic Atmosphere/Soundtrack (2,8 þúsund fylgjendur) og Icelandic Metal (1,3 þúsund fylgjendur) en jafnframt má finna lagalista tileinkaða poppi, jazzi, og mörgu fleira. Þessir lagalistar eru uppfærðir reglulega til að kynna það ferskasta í íslenskri tónlist hverju sinni. 

Þessir lagalistar eru eitt mikilvægasta tól sem ÚTÓN býr yfir til að kynna íslenska tónlist á alþjóðamörkuði. Markmið okkar er alltaf að fá meiri athygli fyrir íslenskt tónlistarfólk almennt og því er umsjón og kynning lagalistanna í forgangi hjá teyminu. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir mikilvægi þess fyrir tónlistarfólk að fá góða spilun á streymisveitum og því leggjum við metnað okkar í það að byggja upp sterkan fylgjendahóp til að gera það sem verðmætast fyrir tónlistarfólk að komast inn á lagalistana okkar.  

Markmið okkar er því tvíþætt: 

  1. Að búa til heillandi lagalista sem tónlistarunnendur falla fyrir og hlusta á aftur og aftur

  2. Gefa íslensku tónlistarfólki tækifæri til að koma lögum sínum inn á lagalista 

Af því tilefni útlistum við því hér hvernig valið er inn á lagalista Iceland Music og hvetjum við öll þau sem gefa út tónlist hér á landi að senda okkur tónlist sína um leið og hún er komin út á Spotify. 

Svona gengur ferlið svo fyrir sig: 

1. Sendu lögin þín til okkar 

Við hvetjum allt íslenskt tónlistarfólk* til að senda útgáfurnar sínar, daginn sem þær koma út, á playlists@icelandmusic.is. Sendu slóð á Spotify link!

2. Ný lög fara á New From Iceland

Öll ný lög fara á lagalistann New From Iceland svo lengi sem útgáfan er ný. Við hvetjum ykkur jafnframt til að senda okkur hlekki á samfélagsmiðlana ykkar ef lag ykkar er valið til frekari deilingar á samfélagsmiðlum. 

Þið ættuð að sjá í Spotify for Artists þegar lag kemst á lagalista hjá okkur. Við hvetjum ykkur eindregið til að deila lagalistanum á ykkar eigin samfélagsmiðlum þar sem það styður við vöxt lagalistans og þar með aukast spilanir á á þínu lagi.  Við viljum skapa skemmtilega “New Music Friday” stemningu í íslensku tónlistarsenunni þar sem við deilum okkar lagalistum og lögum sem við fáum send en jafnframt deilum við öðru efni til að draga enn frekar athygli að hversu lifandi tónlistargeirinn er hér á landi. 

3. Lagalistar sem fólk fellur fyrir

Til að laða að okkur alþjóðlega hlustendur er mikilvægt að hafa gott jafnvægi á milli laga frá þekktu tónlistarfólki í bland við nýjar útgáfur. Við höfum til hliðsjónar gengi á vinsældarlistum, spilunartölur sem og ‘momentum’ í kringum listamanninn. Við höfum einstakar mætur á þeim sem eru ‘export ready’ en það er tónlistarfólk sem við getum stutt við enn frekar með öðru starfi ÚTÓN eins og ferða- og markaðsstyrkjum. 

Það skiptir líka máli að búa til stemningu á listanum svo að það sé ánægjulegt að hlusta á listann í gegn, við höfum því líka í huga að lög passi vel saman. Við erum með fjöldan allan af lagalistum til að reyna að finna sem bestan stað fyrir sem flest lög gefin út af íslensku tónlistarfólki.

Þetta þýðir að ÚTÓN hefur frelsi til að taka ákvarðanir er koma að því í hvaða röð lögin birtast á listanum, og hve lengi hvert lag er á hverjum lista. Það er ekki hægt að ganga út frá því að hafi lag birst á lista hjá okkur þá muni það haldast þar eða halda staðsetningu sinni á listanum. Við viljum ítreka að vegna fjölda laga sem við fáum send þá eru lagalistarnir uppfærðir vikulega og því er lögum reglulega skipt út. 

Við hvetjum ykkur þess vegna til að fylgjast vel með á Spotify þegar lögin ykkar detta inn á Iceland Music lagalista og nýta ykkur sem allra best ‘momentum-ið’ sem skapast við það til að deila laginu ykkar áfram á samfélagsmiðlum, deila lagalistanum og tagga @icelandmusic, og reyna að nýta þetta sem stökkpall í enn stærri lagalista.

4. Hvernig er valið?

ÚTÓN teymið hittist vikulega á lagalistafundi þar sem farið er yfir allar nýjar útgáfur og við gerum okkar allra besta til að koma hverju lagi á viðeigandi lista. Við erum jafnframt með mánaðarlegar yfirferðir þar sem við lítum á lagalistana í heild sinni til að sjá hvort að flæðið í þeim sé ennþá spennandi. Í hverri viku veljum við einn lagalista til að kynna á samfélagsmiðlum og einu sinni í mánuði er valinn lagalisti mánaðarins sem kynntur er í fréttabréfi og víðar á miðlum Iceland Music. 

Að lokum viljum við hvetja ykkur til að halda áfram að gefa út frábæra tónlist - án hennar værum við ekki hér :-)

*Til að flokkast sem íslenskt tónlistarfólk þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hafa búið á íslandi lengur en eitt ár, OG

  • Kynnt sem íslenskt (IS) eða íslenskt að hluta til, OG

  • Hafa íslenskan ríkisborgararétt, EÐA

  • Vera búsett á Íslandi. Ef fólk býr ekki lengur á landinu þá þarf að sýna fram á sterk bönd við landið.