Opið fyrir umsóknir í Nordic Folk Alliance, Apríl 2022

Hoven Droven á Nordic Folk Alliance 2019. Mynd: Emelie Dill.

Umsóknarfrestur er til 16. janúar.

Íslenskt tónlistarfólk getur nú sótt um að spila á annarri útgáfu af ‘Nordic Folk Alliance’ sem haldin verður 20.-22. apríl 2022 í Gautaborg í Svíþjóð. Nordic Folk Alliance er showcase hátíð þar sem bæði tónlistarfólk og tónlistariðnaðurinn í folk-tónlistarstefnunni koma saman, sem og unnendur þjóðlagatónlistar og annarra tengdra tónlistarstefna.

Norræn dómnefnd mun velja íslenskt tónlistarfólk til að taka þátt. Þar sem þetta er showcase tónlistarhátíð ber hvert verkefni ábyrgð á eigin þáttökukostnaði en geta sótt um að fá ferðastyrk úr Útflutningssjóði íslenskrar tónlistar.

Umsóknarfrestur er til 16. janúar 2022 kl. 00:00 og verður tilkynnt um valið í byrjun febrúar.

Nordic Music Alliance verður aðallega haldið í Musikhuset í Gautaborg en einnig verður annað húsnæði á svæðinu nýtt. Gestir hátíðarinnar verða fulltrúar frá norrænu útflutningsskrifstofunum sem og erlendir fagaðilar í greininni, en hátíðin er einnig opin almenningi. Nordic Folk Alliance er hluti af alþjóðlegu fjölskyldunni Folk Alliance International, stærsta vettvangs þjóðlagatónlistar í Norður-Ameríku.

ÚTÓN hvetur íslenskt tónlistarfólk endilega til að sækja um. Ekki hika við að hafa samband við starfsfólk ÚTÓN vanti ykkur svör eða aðstoð.

Iceland Music