Opið fyrir umsóknir á Eurosonic

 

Næsta hátíð: 17-24. janúar 2024

Umsóknarfrestur:

1. September 2023

Hvar? Groningen, Holland

Hversu margir mæta? 42.000

Svið: 48

Media & journalists: 423

Hátíðir: 400

Tónlistartegundir:

Rokk // Raf // Hip-Hop // R&B // Indie // Alternative // Folk 

 
 

Tónlistarhátíðin Eurosonic Noorderslag í Groningen, Hollandi hefur opnað fyrir umsóknir, en það er ein mikilvægasta showcase hátíð Evrópu og mun hún fara fram í 17 - 24 Janúar 2024.   

Showcase hátíðir (e. faghátíðir) eru frábrugðnar hefðbundnum tónlistarhátíðum þar sem stór hluti tónleikagesta eru fagfólk úr tónlistarbransanum og þær geta verið stökkpallur á alþjóðlegan tónlistarmarkað þegar vel er að staðið. Slíkar hátíðir eru mikilvægur liður í útflutningi á íslenskri tónlist.

Ef ætlunin er að koma tónlistarverkefni á framfæri á showcase hátíð er mikilvægt að kynna sér vel stefnu hverrar hátíðar og setja sér skýr markmið með þátttöku, einnig er nauðsynlegt að tónlistarverkefnið sé tilbúið til útflutnings (e. export ready).

Eurosonic sækja bókarar allra stærstu tónlistarhátíða heims, en um 4000 tónlistarfagaðilar sækja hana ár hvert. En Athugið að það er bara hægt að koma fram einu sinni á þessari hátíð og því skiptir höfuðmáli að nýta þennan vettvang vel; skilja sín markmið og geta fengið lykilaðila í salinn að horfa á tónleikana ykkar. Það er betra að bíða til næsta árs heldur en að taka þátt illa undirbúin. 

Við mælum helst með því að tónlistarmenn sem fara inn á hátíðina taki með sér umboðsmann, eða amk einhvern sem getur sinnt því hlutverki á hátíðinni, sem getur talað ykkar á máli inn í bransann sem verður á staðnum.

Ásgeir, Aurora, Benjamin Clementine, Birth of Joy, Coely, Ewert and the Two Dragons, Hozier, Ibeyi, Jaakko Eino Kalevi, Jungle, MØ, Milky Chance, Seinabo Sey, SOAK, Vök, Years & Years eru allt dæmi um artista sem komu fram á Eurosonic hátíðinni og nýttu sér þann vettvang til að setja af stað alþjóðlegan feril í tónlist. 

 

Íslenskt tónlistarfólk sem bókað er á hátíðina getur sótt um ferðastyrk í Útflutningssjóð. Þið getið jafnframt haft samband við starfsfólk ÚTÓN ef það eru frekari spurningar um útflutningssjóð .

Við hvetjum ykkur til að skoða vel hvort að þáttaka í Eurosonic sé tímabær vettvangur fyrir ykkur. Ef svarið er já, þá viljum við endilega hvetja ykkur til að setja púður í þrusu-umsókn og sækja um. 

 
Iceland Music