Opið fyrir umsóknir í Ja Ja Ja
Ja Ja Ja er samstarfsverkefni norrænu útflutningsskrifstofanna. Um er að ræða mánaðarleg klúbbakvöld haldin í London og í Berlín. Lykilaðilum úr tónlistarbransanum er boðið á viðburðina, m.a. blaðamenn frá vinsælum tónlistarbloggum, bókarar og plötuútgáfur.
Nú er búið að opna fyrir umsóknir fyrir klúbbakvöldin sem verða haldin verða næsta vor og við hvetjum tónlistarfólk í útrás til að sækja um. Tónlistarfólk sem er valið til að spila á Ja Ja Ja kvöldunum getur sótt um ferðastyrk í Útflutningssjóð. Hægt er að sækja um hér og umsóknarfrestur er til og með 22.nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Anna Rut á netfanginu annarut@icelandmusic.is