Aukaúthlutun markaðsstyrkja

Í ljósi aðstæðna hefur stjórn Útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar ákveðið að vera með aukaúthlutun á markaðsstyrkjum fyrir markaðsverkefnum sem fara eiga af stað á næsta ári. Umsóknarfrestur er 30. nóvember kl 23:59. Ferðastyrkir verða einnig á sínum stað.

Stjórn Útflutningssjóðsins telur mikilvægt að aðlaga úthlutanir sjóðsins að þessum breyttu tímum og styðja þannig við bakið á tónlistarfólkinu okkar. Þrátt fyrir erfiða tíma þá eru tækifæri framundan og við hvetjum tónlistarfólk til að nýta tækifærin og undirbúa markaðsátök á erlendum mörkuðum.

Allar upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna hér: Markaðsstyrkir

Iceland Music