Tvöfalt fleiri hlutu markaðsstyrki

Ophidian I

Ophidian I

Fyrsta úthlutun ársins á markaðsstyrkjum úr Útflutningssjóði íslenskrar tónlistar fór fram fyrir helgi og var tvöfalt fleiri markaðsstyrkjum úthlutað en venjulega þar sem ekki bárust umsóknir um ferðastyrki.

Verkefnin er hlutu styrk voru; Ophidian I, Ægir, Birgir, Brynja, BSÍ, Gunnar Andreas Kristinsson-Moonbow, INNI og Laufey Lín . 

Við óskum þeim til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim á komandi mánuðum.

Næsta úthlutun markaðsstyrkja verður í maí og er umsóknarfrestur til 30.apríl kl 23:59. Við minnum á að ferðastyrkjum er úthlutað mánaðarlega og er umsóknarfrestur á miðnætti síðasta dag mánaðarins á undan.


Iceland Music