Hrefna ráðin verkefnastjóri markaðs- og kynningarmála

Hrefna Helgadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri markaðs- og kynningarmála hjá ÚTÓN. Um nýja stöðu er að ræða og mun Hrefna hefja störf í apríl.

Hrefnu hefur fjölbreytta reynslu að baki í markaðssetningu innan tónlistariðnaðarins, lengst af í London þar sem hún var búsett í 10 ár. Sérþekking hennar er gagnadrifin markaðssetning og hefur hún einnig skrifað og haldið fyrirlestra um tónlist, notkun gagna í tónlist og notkun samfélagsmiðla í uppbyggingu tónlistarferla. Þar að auki heldur hún úti hlaðvarpinu MakeWorkWork og hefur verið mentor t.a.m. á FIRESTARTER tónlistarhraðlinum.

Við bjóðum Hrefnu hjartanlega velkomna til starfa!

Mynd: Sunna Ben

Mynd: Sunna Ben

Iceland Music