Fáðu lögin þín birt á lagalistum Iceland Music

Undir uton.is/lagalistar má nú finna lýsingu á hvernig valið er inn á lagalista Iceland Music, sem er enska vörumerki ÚTÓN og er notað til að koma íslenskri tónlist á framfæri á erlendum mörkuðum og nýtir sér í þeim tilgangi ýmsa miðla á borð við samfélagsmiðla, vefsíður, fréttabréf og að sjálfsögðu, lagalista á Spotify.

Lagalistar Iceland Music hafa samtals yfir 30,000 fylgjendur á Spotify og Apple Music.

Lagalistar Iceland Music hafa samtals yfir 30,000 fylgjendur á Spotify og Apple Music.

Þessir lagalistar eru eitt mikilvægasta tól sem ÚTÓN býr yfir til að kynna íslenska tónlist á alþjóðamörkuði. Markmið okkar er alltaf að fá meiri athygli fyrir íslenskt tónlistarfólk almennt og því er umsjón og kynning lagalistanna í forgangi hjá teyminu. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir mikilvægi þess fyrir tónlistarfólk að fá góða spilun á streymisveitum og því leggjum við metnað okkar í það að byggja upp sterkan fylgjendahóp til að gera það sem verðmætast fyrir tónlistarfólk að komast inn á lagalistana okkar.  

Markmið ÚTÓN er tvíþætt: 

  1. Að búa til heillandi lagalista sem tónlistarunnendur falla fyrir og hlusta á aftur og aftur

  2. Gefa íslensku tónlistarfólki tækifæri til að koma lögum sínum inn á lagalista 

Til að laða að okkur alþjóðlega hlustendur er mikilvægt að hafa gott jafnvægi á milli laga frá þekktu tónlistarfólki í bland við nýjar útgáfur. Við höfum til hliðsjónar gengi á vinsældarlistum, spilunartölur sem og ‘momentum’ í kringum listamanninn. Það skiptir líka máli að búa til stemningu á listanum svo að það sé ánægjulegt að hlusta á listann í gegn, við höfum því líka í huga að lög passi vel saman.

Þetta þýðir að ÚTÓN hefur frelsi til að taka ákvarðanir er koma að því í hvaða röð lögin birtast á listanum, og hve lengi hvert lag er á hverjum lista. Það er ekki hægt að ganga út frá því að hafi lag birst á lista hjá okkur þá muni það haldast þar eða halda staðsetningu sinni á listanum. Við viljum ítreka að vegna fjölda laga sem við fáum send þá eru lagalistarnir uppfærðir vikulega og því lögum reglulega skipt út. 

Þið ættuð að sjá í Spotify for Artists þegar lagið ykkar kemst á lagalista hjá okkur. Við hvetjum ykkur eindregið til að deila lagalistanum á eigin samfélagsmiðlum þar sem það styður við vöxt lagalistans og þar með aukast spilanir á á þínu lagi.  Við viljum skapa skemmtilega “New Music Friday” stemningu þar sem við deilum okkar lagalistum og lögum sem við fáum send en jafnframt deilum við öðru efni til að draga enn frekar athygli að hversu lifandi tónlistargeirinn er hér á landi. 

Iceland Music