Önnur úthlutning markaðsstyrkja 2021
Önnur úthlutun ársins á markaðsstyrkjum úr Útflutningssjóði íslenskrar tónlistar fór fram á dögunum. Alls nam úthlutinin 3.250.000 krónum.
Verkefnin sem fengu styrk voru:
Axel Omarsson
Gunnar Andreas Kristinsson
Kristin Sesselja
Of Monsters and Men
Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR
Supersport!
Ægir Sindri Bjarnason
Þar að auki fékk Sunna Gunnlaugs ferðastyrk. Við óskum þeim öllum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim á komandi mánuðum.
Næsta úthlutun markaðsstyrkja verður í ágúst og er umsóknarfrestur til 30.júlí kl 23:59. Við minnum á að ferðastyrkjum er úthlutað mánaðarlega og er umsóknarfrestur á miðnætti síðasta dag mánaðarins á undan.