Nóvember úthlutun markaðsstyrkja á árinu
Fjórða úthlutun ársins á markaðsstyrkjum úr Útflutningssjóði íslenskrar tónlistar fór fram á dögunum. Alls nam úthlutinin 3 milljónum króna yfir bæði ferða- og markaðsstyrki.
Verkefnin sem fengu markaðsstyrk voru þau:
Anna Gréta
Daníel Hjálmtýsson
Jadzia
Laufey Lin
Sóley
Unnur Sara
Við óskum þeim öllum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim á komandi mánuðum.
Vegna COVID-19 er hefur Úthlutunarnefnd Útflutningssjóðs ákveðið að opna aftur fyrir umsóknir í markaðsstyrk fyrir 1. desember.
Yfirleitt eru styrkirnir aðeins veittir fjórum sinnum yfir árið, en tekin var sú ákvörðun að þessu sinni að gefa umsækjendum tækifæri á að sækja um fyrir 1. desember líka.
Umsóknarfrestur er því 30. nóvember kl 23:59. Við minnum á að ferðastyrkjum er úthlutað mánaðarlega og er umsóknarfrestur á miðnætti síðasta dag mánaðarins á undan.