Nantes-Reykjavík vinnudvöl fyrir tónlistarfólk
L’Institut français (e. The French Institute), Tónlistarborgin Reykjavík, franska borgin Nantes, ÚTÓN, Mengi í Reykjavík og Trempo í Nantes bjóða upp á skiptivinnudvöl fyrir tónlistarfólk, annars vegar frá Reykjavík og hins vegar frá Nantes. Markmið verkefnisins er að byggja brú á milli borganna tveggja og tónlistarsamfélaga þeirra, sem og hlúa að sjálfbæru samstarfi í gegnum krafta tónlistar og sköpunar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Franska sendiráðið á Íslandi, Alliance Française de Reykjavik og STEF.
Vinnudvölin býður útvöldum einstaklingi tækifæri til að skapa tónlist í fullbúnu hljóðveri og æfingarými í 2-3 vikur, án tiltekinna kvaða um endanlega útkomu þeirrar vinnu. Dvölin er jafnframt einstakt tækifæri fyrir viðkomandi til að tengjast tónlistarsenunni í Nantes og þar með Frakklandi, jafnt öðru listafólki sem aðilum úr tónlistariðnaðinum.
UMSÓKNARKRÖFUR
Viðkomandi þarf að vera tónlistarmaður/kona (tónskáld, flytjandi eða upptökustjóri)
Æskilegt er að viðkomandi sé komin/n nokkuð áleiðis með að byggja upp feril og hafi tónlistarlegt og faglegt bakland.
Þarf að vera “export-ready”
Tónlistarflokkar: Popptónlist / avant garde / elektróník / tilraunakennd tónlist / djass / sígild og samtímatónlist.
Viðkomandi þarf að vera vanur því að vinna sjálfstætt.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að leiða vinnustofur eða meistaranámskeið.
Skilyrði er að umsækjandi sé meðlimur STEFs.
HVAÐ ER Í BOÐI?
Umsækjandi sem verður fyrir valinu fær:
Ferðakostnað frá Íslandi til Nantes og til baka greiddan
Gistiaðstöðu
Dagpeninga (30 evrur á dag) í Nantes
Verkefnastyrk (750 evrur).
Æfingahúsnæði sem staðsett er í Trempo, Nantes. Innan ramma þessa samstarfsverkefnis býðst einnig vinnuaðstaða í hljóðveri Trempo (fyrir tæknilista hafið samband við anna.rut.bjarnadottir@reykjavik.is)
Listræn aðstoð og stuðningur frá teymi Trempo. Fundir og tengslamyndun við tónlistarsenuna í Nantes
Tónlistarmanneskjunni býðst að:
Koma fram á tónleikum í Trempo
Leiða vinnustofu, sem greitt er fyrir, í Trempo. Þema vinnustofunnar verður valið í samstarfi við þann umsækjanda sem fer út.
TREMPO
Trempo er einstök tónlistarstofnun sem hefur helgað sig öllu sem viðkemur iðkun, sköpun, framleiðslu og flutningi nýrrar tónlistar. Hún var stofnuð árið 1990 og hefur verið staðsett í 7 hæða byggingu í hjarta Nantes. Rýmið samanstendur af 2300 m2 vinnurými, 16 hljóðverum, verönd og bar.
TÍMASETNING
Tímasetningin sem er áætluð fyrir vinnudvölina fyrir tónlistarmanneskju frá Reykjavík í Nantes er frá loka maí til loka júní 2022. Nákvæm tímasetning verður ákveðin í samráði við þann umsækjanda sem verður valinn.
UMSÓKN
Vinsamlegast athugið að umsókn þarf að svara á ensku. Það sem þarf að koma fram í umsókn og fylgiskjölum:
- Tónlistardæmi: tenglar á tónlist þína og/eða myndbönd
- Stutt ferilskrá á ensku
- Stuttur texti á ensku (max 1 bls.) um af hverju þú ert að sækja um þessa vinnudvöl og væntingar þínar til verkefnisins.
Umsóknareyðublað um vinnudvöl í Nantes í Frakklandi
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2022
Umsóknum verður svarað fyrir lok febrúar .
Spurningar berist til: anna.rut.bjarnadottir@reykjavik.is