Leifur Björnsson ráðinn til starfa

 

Leifur Björnsson hefur hafið störf hjá ÚTÓN sem verkefnastjóri og tölvurýnir.

Leifur er menntaður tölvunarfræðingur en býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af tónlistariðnaðinum og hefur komið víða við, starfað sem tónlistarmaður og upptökustjóri en einnig í útgáfumálum og stafrænni dreifingu á tónlist.

Stjórn og starfsfólk ÚTÓN bjóða Leif innilega velkominn en hann mun styrkja teymi ÚTÓN í viðleitni sinni við að koma íslenskri tónlist á framfæri og skapa henni tækifæri á alþjóðavettvangi.

 
Iceland Music